Pink sugar honey ;)

Sveina!..

25.04.2007 00:14:59 / Sveina Rún :)

Ókay.. Dugleg eða?

Ég er bara ekkert smá dugleg.. Fór útað labba i dag.. og langan spotta barasta.. Ætla bara að byrja að labba rösklega.. Því ég hef ekki hreyft mig neitt síðan ég byrjaði að reykja.. í 3 og hálft ár.. Þannig þol mitt er freeeekar lélegt.. hehe.. Svo fór ég í ljós að slappa af.. svo er bara farið aftur í göngu á morgun.. Svo kaaanski hugsa um að hætta að reykja.. einhvertiman.. vil ekki vera gömul kona reykjandi með súrefniskút!

Eeeen.. ég nenni varla að blogga.. verð bara að spyrja .. hver á lögin Amie, eskimo, valcono eða bara öll lögin á plötunni o með damien rice?? Plís verið svo væn að senda mér á msn.. Þó við þekkjumst ekki mikið, bara senda mér:)

En já.. Hú á fimmt.. greyjið Sveinbjörn að keyra á móti mér svona seint og mæta svo i vinnu bara eftir 2 tíma eða svo.. En held að hann sé vanur því .. svo að..

En Stelpur.. verður e-ð útúr þessari bústaða ferð? Og hverjir fara? :)

Halla.. ég kem á föst.. held ég með Sveinbirni að kikja á þig elskan.. :) Gangi þér vel..

Nenni ekki meir..



Eruðið að grínast????? Guð.. ég ætla sleppa að eignast börn og eiga bara þúsund kisur!!



Hahahah... sætt!!!





Ókay.. þetta fékk ég með því að skrifa köttur á google.. og þetta eiðilagði stemminguna að skoða sætar kisur!!!!!



Samt þegar ég sá þennan.. Guð!!!




Vá.. Huge



Ókay, hver gerir kisunum sínum svona?? greyjið.. og hana nú.. Kakó er bara nettur miðað við þennan!

Noekula Kittens...

VÁAA!!!




pff.. ég get skoðað kisur endalaust



Guð.. ég vona nú samt að þeir séu á lífi þarna



Sjitt!!!!!

ókay.. ég er hætt!!! Skil ekki að eitthvað sé svona sætt!!!! Svo eru náttla Thule, Denni og Kakó.. verð að setja inn myndir af þeim.. elska þá:)

Blogga skemmtilegra seinna.. Þó ég elska að skoða blogg með kisum, een..

komment takk;) bæj bæj..

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 21:37:28 / Sveina Rún :)

Slösuð.. :/

Jæja.. þá er ég bara stór skemmt.. þetta var nú fyrst frekar fyndið.. var að fara með samloku til e-ð fólk og labbaði svo bara af stað með disk i hendinni, og flaug svona á hausin.. og bæði hnén mín eru marin, öxlin og bólgin á olnboganum og svo skar ég mig, og sauma þurfti 5 spor.. vont að vera deifð.. áts.. en það sá engin þetta nema Helgi og Bjössi.. og þeir hlóu bara asnarnir.. En svo eftir læknin fór ég bara vinnu í góðum fíling.. höllt pínu, og enþá deifð í sárinu.. en djöfull var þetta vont i nótt og í dag.. een ég er mjög mikill aumingji á þessu sviði.. enda meiði ég mig ekki oft.. ekki vön svona sársauka.. i´m a hard ass... ;)

En já.. um helgina var vinnuhelgi hjá mér.. samt fín helgi. . Tók mér frí pínu á fös og lau.. skrapp í party til Alla Péturs .. og dró Dísu frænku með, en hún fór um tólf, hálf eitt.. og þá var ég bara alein með einhverjum strákum.. en það var bara gaman, vorum í drykkjuspili og svona.. Fór svo heim kl hálf 4 og steinrotaðist.. Og já.. Alli tók myndir af partyinu á nyju lélegu myndavélina mina, þarf e-ð að stilla gæði og kann það ekki rassgat, set myndirnar inn seinna ef einhver nennir að skoða þessa fáu og lélegu myndir!

Svo kem ég heim á Hú um helgina, eða fimmt kvöldið.. mamma ætlar að keyra á móti Sveinbirni um 10 um kv.. Fer svo til Lóu og við ætlum að horfa á e-ð.. Þvi hún verður ekki heima um helgina bölvuð;) Svo verð ég að finna e-n til að fara með mér til Ak á fös.. til að hitta littla mannin hennar Höllu.. :) Hlakka svoooo til!!!

Stelpur? Verður e-ð útúr bústaðaferðinni?

En ég var einmitt að pæla í dauðanum, ég vil vita hvenær ég mun deyja.. eða svona veikjast bara pinu og vita hvað ég á langt eftir, svo ég gæti kvadd alla og verið sátt við alla, staðin fyrir að fara bara og vera kannski búin að sega e-ð ógeðslegt við einhvern og geta bara kvatt og sagt það sem ég vil sega, og sem ég hef ekki sagt einhverjum áður.. æji.. skiljiði? og líka svo einhver myndi vera búin að rífast við mig og svo myndi ég deyja, og manneskjan myndi vera með það á samviskunni alla sín ævi.. en já.. ég myndi vilja það:) en samt ekki kveljast áður en ég myndi deyja..  Bara pínu pons pæling..

Á frí á morgun.. mm gott.. ég sem er búin að ákveða að fara út á hlaupa hvenær sem ég get.. ÉG sko???!!! Leti bykkjan ég.. ég held að ég hafi bara gott af því að fara út að skokka öðru hverju.. Fór á fimmt.. með Degi og Sæþóri.. frekar fint, og pínu pons þol sem ég þarf að bæta.. haha!!..

En .. ég nenni ekki meiru blaðri.. Kvitta krakkar:)

Bæbæ.. kv. klaufabárður

That´s me..

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 00:54:29 / Sveina Rún :)

Komin heim.. mm:)

Jæja þá er ég komin aftur heim á Vopna.. Fór einmitt til Hú á fös.. til að vera aðeins með pabba gamla, þar sem hann var að missa vin sinn..  Og það var bara mjög fint að fara aðeins til hú.. Kem svo aftur helgina 27.. þá verður Halla mín tekin upp með keisara.. Og við stelpurnar vorum í bústað á lau.. halda uppá afmælið hjá tvíbbunum mínum.. við sigrun, eyrun, þórunn og makar.. veit allavega ekki um flr sem fara .. enda er þetta bara svona gisk hjá mér! Hlakka mjöög til.. verður grillað.. og ég bý mér bara til nesti til að fara með.. þar sem ég borða ekk kjöt.. tek bara brauð, súkkulaði og mjólk.. þá er allt fullkomið.. Svo verður kannski fengið sé í staup eða svo.. Langar geggjað að kaupa gott hvít vín og svo tópas.. mm.. Nema gallin er það að dagin eftir þá verð ég svo ógeðsleg.. en sunnudagar hjá mér fara hvort eðer í að vera ógeðsleg uppí sófa svo að... hehe:)

En já.. Dagurinn hjá mér er búin að vera frekar næs og leiðinlegur til skiptis.. hehe.. kom heim til Vopna um hálf 3.. og vissi bara ekkert hvað ég átti að gera af mér, svo ég fór uppí sófa og fékk mér smá blund til að drepa timan, hehe:) Svo er ég bara búin að vera í algjörri leti.. Alveg hrikalega gott!

En á morgun, þá var mamma mín að ákveða að fara til Húsavikur .. og koma ekki fyren á mið.. þannig ég verð bara ein heima með kisurnar.. djöfull verður það næs.. en svo er vinnu helgi hjá mér.. er engan vegin að vinna frá 10 um morguninn til 11 um kvöldið .. þessa 3já daga.. ég er sko algjör leti bykkja.. En svo verður held ég minningar athöfn á fös heeeld ég.. þá verður farið i hana! Þannig pabbi kemur, vona að ég fái þá frí i nokkra tima til að vera með gamla kallinum :)

En herna eru svona sp um mig.. sem ég svara.. svona einsog um mig.. sá þetta á einhverri síðu.. man ekki hvaða.. hjá einhverjum sem ég þekki ekki baun, vona að ég megi stela..:)

Nafn : Sveina..
Hefuru?
Reykt? já
Drukkið? já
Dópað? nei
Logið? já
Svikið? já

Hefuru verið?
Ástfangin? ójá
Döpur? já
Glöð? já
Svikin? jáh
Feit? held ekki, bara bumba
Mjó? já, var t.d ogeðslega horuð svona 4-9
Í ástarsorg? pff.. jáh!!

Besta vinkona? Allar mínar vinkonur
Uppáhaldslitur? Blár og svartur
Besta bíómynd? Svoo margar, the holiday, never been kissed, 10 things, bridget, the six sence, og svoo margt flr.
Besti þáttur? Desp, oth, nágrannar, glæstar, beverly, melrose, friends, grey's og flr
Fyrimynd? Mæja
Gæludýr? já 3 kisur:)
Tattoo? já 2
Gat? já, tunga
Systkini? já 3
Haldið framhjá? jaaa, veit ekki.. eilla .. mörg ár síðan.. aldrei gert aftur
Haldið framhjá þér? Já!!
Vitni af glæp? Nei, held ekki
Verið kysst? já
Kysst stelpu? já

Já.. :) Svo fyrir ykkur að svara ef þið viljið:)

1. Minnst 3 orð til að lýsa mér?
2. Hæfileikar mínir?
3. Gallarnir mínir?
4. Er ég ljót? allt i lagi? sæt? falleg?
5. Eru þetta leiðinlegar og asnalegar sp?

Haha.. man þegar ég var alltaf að stela svona sp og setja hingað inn.. en endilega svara ef þið viljið.. hehe:)

Takk fyrir mig.. ég vil fá comment:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 01:24:41 / Sveina Rún :)

Power of love...

... er svoo gott lag með celine dion.. Er einmitt að chilla i stofunni með celine disk.. Og með kisurnar minar sem félagsskap.. Kósý.. En já í nótt svaf ég ekki svo vel.. Björgunarsveitin var á fullu í gærkveldi og nótt og í dag að leita að manni útá sjó! Og loksins fannst hann í dag.. Því miður látin! Besti vinur pabba.. og fjölskylduvinur! Leiðinlegt að þetta fór svona! Erfitt að trúa á guð á svona tímum! En já.. Lífið er víst oft ömulegt! En í dag eða morgun kl 9, mætti ég í vinnu.. Og vann til 4.. Fór svo til Sillu að horfa á Beverly & Melrose.. Og ég & Elísabet ætluðum að vera svooo duglegar og fara í ræktina í dag.. en beiluðum á því og fórum bara í ljós í staðin .. Notalegt!

Svo núna áðan var ég að setja svona hundrað og þrjátíu myndir inn, og nei.. datt það út!! Pirrandi.. Og ég nennti ekki aftur.. En því miður tók ég engar myndir frá Rvk.. því  ég fékk bilaða myndavél.. ömurlegt.. En það var samt gaman í Rvk.. Við Sveinbjörn gistum bara hjá Steina, hann var einn heima.. og Jakob var líka í Rvk.. og gisti líka hjá okkur!:) Mjög gaman, nema mér fannst mér vanta stelpu í hópin.. Sylvia kom aðeins á fimmtudagskvöldið held ég.. En hún fór í bústað um helgina.. þannig ég var bara ein með þeim.. Fórum 2svar i keilu.. og ég og Jakob börðumst um 3ja sætið og steini og sveinbjörn um 1.. Rosa gaman!:) Svo fórum við í tattoo, ég, Jakob & Sveinbjörn fengum okkur:) Þeir e-ð tribol.. ég valdi einmitt Sveinbjörns.. og ég fékk mér kisuloppur á náran!:) Er svona ágætslega sátt.. ekkert allof sátt.. en ég verð að vera það bara, ég verð með þetta að eilífu. . Sveinbjörn var veikur alla helgina, og smitaði svo Steina á sunnudaginn.. Þannig það var farið að sofa snemma alla dagana eiginlega.. Var reynt að drekka á fös.. Og ég og Steini sköpuðum okkar eigin drykkjuleik.. hrista tópas pela og taka súp til skiptis.. rosa skemmtilegt:) En nóg um Rvk ferðina.. nema eitt.. Aldrei fara í sjoppuna Aktu Taktu.. oj bara hvað þetta er ógeðsleg sjoppa, kann ekki að gera gelgju né sjeik.. Það á ekki að vera erfitt! .. hehe:)

En já.. Ég fer til Húsavíkur á morgun með Sillu.. Hitta pabba minn og vera soldið hjá gamla:) Og hitta Höllu mína og sjá allt barna dótið :) Halla að verða mamma, er enþá að melta þetta:) hehe.. littli Sveinar að fara koma í heimin.. En já.. fer að fara flytja.. Fékk náttla vinnu hjá mæju minni.. í bakarí-inu og Kaffiskuld.. Gott að vinna þar! Svo eftir sumarið fer ég að leiga mér.. og taka littlu kisurnar mínar áðuren þeir ganga frá mömmu.. :)

Jéé.. Svo var Berglind mín að hætta í gær og flytja suður.. og ég og Elísabet vorum búin að setja vatn i fötu með cokteil, tómats, BBQ sósu og einhverju ógeði og sturtuðum yfir hana.. Hún var ekkert rosalega ánægð... :) hehe.. Ég á nú eftir að sakna hennar pínu pons þótt ótrúlegt sé.. hehe.. ;)

Og já.. Það er búið að gelda kisurnar minar.. og þegar þeir vöknuðu úr svæfingunni voru þeir svoo fullir.. og fundu svo til.. duttu bara þegar þeir reyndu að labba greyjin.. Ég, mamma og Manni fórum með þá.. og horfðum á vera fjarlæga kúlurnar.. og það var ógeðslegt! Hélt ég myndi æla.. En svo var ekki!

Svo ætla ég að enda á göööömlum myndum.. haha:)


Ég 13 ára.. á mínu ógeðistímabili.. hvað var að? einsog hóra.. haha;)



Ég og halla.. 13 ára



Halla og Karo.. gamalt;)


Aftur.. haha;)



Halla að gefa mér koss:)



haha.. 8 bekkur..



Halla og Hallgrímur bara sæt!



haha hvað er málið?



Svo ein af mér og Sigrúnu FALLEGU!! shitt.. ég er farin að halda að ég sé lessa.. haha:)
Nei nei.. hver veit samt nema ég komi úr skápnum.. hehe:) En já..

En nenni ekki meir.. commenta.. fyrir mig:)

» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 32011
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 apríl
Tenglar